Skór með fullkomna dempun og mýkt. Þróaðri útgáfa af verðlaunaskónum 1060. Henta þeim sem eru með venjulegt niðurstig fótar eða úthalla í niðurstiginu. Einn albesti "neutral" skórinn á markaðnum í dag.
Helstu eiginleikar Loksins hafa framleiðendur New Balance framleitt skó sem toppa flesta skó frá öðrum framleiðendum hvað varðar skó fyrir þá sem eiga við úthalla að stríða í niðurstiginu.Sterk og þægileg yfirbygging. N-LOCK kerfið gerir sterka og þægileg yfirbyggingu enn þægilegri og mýkri. N-DURANCE slitsterk gúmmíblanda á lendingarsvæði hælsins eykur endingu sólans.
Dempun ABZORB SBSháþróaða dempunarkerfið er í öllum framhlutanum og hælnum en það veitir fullkomna dempun. Eftir því er tekið meðal hlaupara hvað dempunin og stuðningurinn er góður undir táberginu. Dempandi ABZORBinnlegg í skónum eykur dempun og þægindi enn frekar og gerir skóna óviðjafnanlega. Í 1063 er nýjungin ABZORB FLsem vinnur á þann hátt að þeir kraftar sem myndast við snertingu fótar við undirlag dreifast og deyfa höggið sem færi annars gegnum skóinn og upp í fótinn og líkamann (þess konar högg geta valdið hæl, ökkla og jafnvel bakverkjum).
Stöðugleiki Stuðningur í sólanum utanverðum sem veitir stöðugleika í niðurstiginu. STABILITY WEB plata veitir stuðning undir miðjan skóinn, eykur sveigjanleikann og gerir hann léttari. Án efa lang stöðugasti neutral skórinn á markaðnum í dag.
Miðsóli C-CAP miðsóli léttir skóinn og eykur dempun og sveigjanleika hans.
Aðrar upplýsingar Þyngd: 270 gr. Fæst í stærð 6-10 US.