Hlaupagreining - Göngugreining
Hlaupagreining er einn mikilvægasti þjónustuþátturinn í verslun okkar. Við hlaupagreininguna vinnur sérfræðingur með áratuga reynslu á sviði vandamála sem tengjast stoðkerfi líkamans. Stuðst er við greiningarbúnað og veittar úrlausnir varðandi skó eða sértækari lausnir svo sem sérsniðin Superfeet innlegg sem veita fullkominn stuðning við hæla og ylboga og koma í veg fyrir þreytu eða verki í stoðkerfi. Erum auk þess með upphækkanir í skóhæla. Öllum göngugreiningum er fylgt eftir sé þess óskað með vali á réttum New Balance hlaupaskónum fyrir þig.
Rangur skóútbúnaður getur valdið verkjum,sliti og meiðslum í td. ökklum, hnjám, mjöðmum og baki.
Það borgar sig að leita til þeirra sem hafa áratuga reynslu og þekkingu á skóm og innleggjum.
Pantið tíma í síma 553-1020/553-1080 eða sendið okkur tölvupóst í afrek(at)afrek.is |